Þorravísur 2013 eru komnar hér á heimasíðuna. Þórður G. Ólafsson skráði vísur/ljóð eftir bestu getu af miðum úr vísnahatti!  Athugið að það eru tvær vísur/ljóð sem vantar höfund/bústað. Ef þið kannist við vísuna þá getið sent upplýsingar til vefsíðustjóra.

Hið árlega þorrablót Hestlendinga verður haldið laugardaginn 12.janúar 2013 í golfskálanum Kiðjabergi og hefst það kl. 19:00.

Kæru Hestlendingar.

Við sem stóðum að þorrablóti Hestlendinga 12. janúar 2013 viljum þakka fyrir gott kvöld og frábæra mætingu. Uppselt var á blótið, 97 manns skemmtu sér langt fram eftir nóttu.

Nokkrar myndir frá síðustu helgi. Ekki var mannmargt en góðmennt. Veðrið á föstudeginum hafði sín áhrif því það var snælduvitlaust í Ölfusinu og við Ingólfsfjall, en þegar komið var í Grímsnesið var bara gott og laugardagur og sunnudagur frábær.