- Details
Blótað í Hesti 2016
18. þorrablót Hestlendinga verður haldið níundadag janúarmánaðar 2016
Kæru Hestlendingar.
Þá er komið að hinu árlega þorrablóti sem verður haldið að venju aðra helgi janúarmánuðar, nánar tiltekið laugardaginn 9.janúar 2016 í Golfskálanum Kiðjabergi. Húsið opnað kl. 18.30 flugeldum skotið upp kl. 18.45 og hátíðin hefst stundvíslega kl. 19.00
Dagskrá verður að mestu með hefðbundnum hætti, konur prýða sig með höttum og karlar með slaufum.
Verðlaun fyrir frumlegustu/flottustu slaufuna og hattinn.
Vísur um bústaðinn ykkar eru kærkomnar, eins er ykkur velkomið að flytja sögur úr Hestlandi, í bundnu eða óbundnu máli.
Innkaup þarf að áætla miðað við fjölda gesta, því er brýnt að staðfesta þátttöku sem fyrst og greiða eigi síðar en föstudaginn 2.janúar 2016 . Þátttaka tilkynnist á netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Velkomið að taka með sér gesti.
Verðið er 5000 krónur per mann. Vinsamlegast greiðið pantaða miða inn á reikning 0345-26-6999 kt. 600891-1389 og senda staðfestingu á netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. því fyrr því betra.
Í fyrra seldust upp allir miðar, við hvetjum ykkur því til bregðast fljótt við og tryggja ykkur miða í tíma. Viljum endilega fá ykkur sem flest á þorrablót 2016
Við skráningu getið þið sent inn eitt óskalag danslag (eitt lag frá bústað) og er það pantað um leið og miðar.
Bestu kveðjur,
Nefndin sem skipa
Edda og Alexander í Brekkukoti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Jenetta og Benóný í Draumi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Lára og Þorsteinn í Miðgarði This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sigurbjörg og Sigurður í Heiðarhvammi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
- Details
Golfmót Hestlendinga
29.ágúst 2015 klukkan 13:30 (ath.breyttan tíma)
Spilaðar eru 18 holur á Kiðjabergsvelli.
Verðlaun:
· Klúbbmeistari - besta skor án forgjafar.
· Kvennaflokkur með forgjöf
· Karlaflokkur með forgjöf
· Nándarverðlaun eru veitt á öllum par 3 brautum.
· Hámarks forgjöf í mótinu er 36.
Gjaldgengir í golfmótið eru sumarbústaðareigendur í Hesti, foreldrar þeirra, afkomendur og tengdabörn.
Þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir félaga í GKB, annars kr. 4.500.
Verðlaunaafhending og kvöldverður að móti loknu.
Þátttaka tilkynnist á netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi 28.08.2014.
Verðlaun í mótið eru þegin með þökkum.
Stjórn GHE
- Details
Eins og við höfum væntanlega öll orðið vör við eru framkvæmdir við lagningu hitaveitu hafnar.
Ýmsar upplýsingar hafa verið birtar á Facebook um aðdraganda framkvæmdanna og væntanlega lagningu ljósleiðara.
Gert er ráð fyrir að lagning stofnæðar í Hestlandi hefjist um miðjan október og í framhaldi af því verði farið að huga að lagningu dreifikerfis og heimæða að einstökum sumarhúsum.
Án efa eru margir sem vilja nýta veturinn til að undirbúa lagnir og breytingar sem gera þarf við og í bústaðnum til þess að vera tilbúin þegar að því kemur að fá tengingu á heitavatninu en það er áætlað eftir mitt næsta sumar.
Það er auðveldara að fá iðnaðarmenn til starfa yfir haustið og vetrartímann heldur en þegar kemur fram á vorið.
Stjórn félagsins ákvað þess vegna á fundi sínum nýlega að leita eftir aðstoð frá Lagnaþjónustunni sf. á Selfossi um ráðgjöf fyrir þá sumarhúsaeigendur sem þess óska. Niðurstaðan af þeirri málaleitan var sú að Ásgeir hjá Lagnaþjónustunni býður þá þjónustu að veita einstökum sumarhúsaeigendum ráðleggingar um nauðsynlegar framkvæmdir og að setja fram tilboð ef eftir því er leitað. Þessi þjónusta er endurgjaldslaus í trausti þess að þjónustan leiði til viðskipta við einhverja.
Fyrirkomulagið sem boðið er upp á er að einstakir sumarhúsaeigendur hafi samband við Ásgeir í síma 4822311 / 6962310 eða með tölvupósti á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Í samráði við hvern og einn verður tiltekinn dagur og tími sem þeir munu verða á svæðinu. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru hvattir til þess að láta vita fyrir 30. september n.k.
Verið er að kanna möguleika á hagstæðum verðum í varmaskipta og annan búnað í samráði við stjórn Kiðjabergs.
kær kveðja
f.h. stjórnar
Ólafur Kristinsson, formaður
- Details
Árshátíð Landeigendafélags Hests 2015 verður haldin með hefðbundnum hætti um Verslunarmannahelgina og fer fram á félagssvæðinu í Kinnhesti laugardaginn 1. ágúst. Að venju hefst árshátíðin kl. 13:00 á Brandarakeppni barna og að henni lokinni fer fram Hestlandsmeistaramót í Kubb. Léttar veitingar (pylsur og gos) verða í boði félagsins að Brandarakeppninni lokinni. Um kl. 22 um kvöldið verður varðeldur í Kinnhesti með brekkusöng.
Skráning í Kubbmótið og Brandarakeppni barna fer fram á staðnum. Keppt er um veglega farandgripi. Að vanda keppa 3ja manna lið í Kubbmótinu. Einnig er veitt viðurkenning fyrir besta liðsbúninginn. Kennsla fyrir byrjendur í Kubbi fer fram í Kinnhesti keppnisdaginn kl. 11:00.
Upplýsingar um reglur Brandarakeppninnar og Hestlandsmeistaramótsins í Kubbi má sjá á heimasíðu félagsins undir ”Félagsstörf”.
Góða skemmtun!
f.h. árshátíðarnefndar,
Halldór í Kerlingagarði