Vísur frá Þorrablóti Hestlendinga 2008

birt með fyrirvara um rétta afritun. Villur tilkynnist vefsíðustjóra til leiðréttingar.

Í þorrablótsnefnd sátu:  
Páll og Hrafnhildur í .........
Rafn og Gunnlaug  í Brekku
Ólafur og Verónika í Teigi
Skúli og Elísabet í ..........

Álfasteinn
Þó að liggi tröll í leyni
ljótir púkar hrini og veini
sveinar undan konum kveini
kyrrt er Álfasteini.

Ból
Í Hestlandi best er að búa
á Bólum - því viljum við trúa. 
En gallinn er sá 
ef telja það má 
í borgina aftur að snúa.  

Hér er borðað og blótað af þunga 
á bringukoll smjattar hver tunga. 
Svo er skálað í Hesti 
á mínútu fresti 
ég held að ég fái mér punga.

Heiðasel
Raunir golfarans:
Göngum, göngum, göngum upp á teiginn
grípur nýjan dræver þéttingsfast.
Boltinn slæsast eitthvað yfir veginn,
andstæðingur minn fær hláturskast.
Einfaldlega spyr ég, á ég ekki inn, mulligan.

Hola 13 hallar niðr’að ánni.
Hérna þarf að lenda á miðri braut
Boltinn flýgur belgjaður með tánni,
beint í djúpa grasi vaxna laut.
Ekki fæ ég par í þetta sinn,
Því enginn getur fundið boltann minn.

Hlíðarendi
Janúar morgunn, jólin búin 
jafndægurs áhrifa farið að gæta

Á landið og þjóðina lífs er trúin 
og löngun heiminn að bæta.

Baðar sólin brúnir og gil 
brýtur áin hvert klakaþil
Þekur fönnin þar um bil
þúfur á Hesti um áraskil.

Höfðingi mikill a Hlíðarenda situr 
hann er farsæll, fríður og vitur 
Segir að fjallið Hestur allan sig eigi 
og ætíð þess kalli hlýða megi.

Um æðar hans rennur ættarblóð
ættar sem kaupir og selur lóð
Hestfjallinu kappinn svo háður er 
að hugurinn stöðugt er austur hér 
Þó víða hann ferðist um veraldargeim 
vegarins leitar að Hlíðarenda heim.

Kerlingagarður
Í Kerlingagarði er kátt á hjalla.
Komumenn þar sitja og spjalla.
Um Ásu Finns
Og Alex prins?
Er drottningin með öllu mjalla!

Vísur hnjóta af vörum Bjarna bróður.
Bragarháttur misjafnlega góður.
Ein um mig
Og ein um þig.
Er skáldagáfan kostur eða ljóður?

 Í Hestlandi er minnsta upphæð milljón.
Og margir tala einungis um billjón.
En Hestfjall allt
Er líka falt.
Það fer þó varla á krónu undir trilljón.

Miðgarður
Sláturkeppir, sviðasull 
seitla neðri veginn 

engin krafa um kvæðabull 
mikið er ég feginn.


Sjónarhóll

Á Sjónarhólnum alltaf er
einkar gott að vera.
Rut og Bragi cavalier,
kostina fram bera.

Á Sjónarhól er magnað að búsa
og ráfa svo milli húsa.
Í Hestlandi er gott þykir mér
að blóta þorra og djúsa.


Slauka
Slauka heitir lækur sá
er liður meðfram fjalli.
Hvítá vildi hana fá
til burðar sinu yfirfalli

Sunnuhlið 
Hlutabréf úr háu verði falla, 
út í heimi geysa hatrömm stríð.  
Ef ég gæti óskað fyrir alla 

og ég meina, bæði konu og kalla, 
ættu allir sína "Sunnuhlíð".

Teigur
Mér á Teigi er málið skylt
því mín ei yrkir kona, 
nefndu hvað þú vinur vilt
en vísan hún er svona.

Æsa
Álpist þú í okkar bú
ei skal um þig væsa,
heljarsteik og hana nú
húsið nefnist Æsa

Ásgarður
Frá Þorrablóti heyrast hlátrasköll.
Hestlendingar flytja kvæðin snjöll.

En úti er ís 
og landið frýs,
yfír því vaka álfar, vættir, tröll.


Brekkukot

Í Brekkukoti bölva menn og vegna,
biða þess að raddir fari að þagna,
sem fylkja liði
og bölva hliði,
en munu að lokum slánni góðu fagna.


Draumur
Þegar sólin sigrar él
og sviptir hjúpi mjalla.
Vorblíðunnar vinarþel
vekur þrá til fjalla.

Leggjum alla byggð að baki
breytum nöldri í ástarhjal.
Við fossanið og fuglakvaki
finnum lífsins sæludal.

Gaularás
Á bak við Gaularásinn 
veislueldhús frú Kristoffersen rís
grasþakið blotnar, þornar og frís.
Hoppa þar og hlæja hundrað mýs.
Sjö litlar sluppu inn
og gengu beint í dauða sinn.
Drápstækið skreytir hálsinn minn


Hestmýri

Í bústaðnum bæði við höfum það gott, 
borðum þar krásir og leggjumst í pott, 
grannarnir góðir, 
glettnir og fróðir, 
Guðni á Grána, já, útsýnið flott!

Golfið víst gætum við stundað ögn betur, 
gleymum því viljandi stundum um vetur, 
sól sífellt hækkar, 
letin með lækkar, 
þá golfkylfu grípur til hver sá sem getur.


Kerlingagarður gestur

Brúnastaðir blasa við, 
beljandi heyri Hvítár nið
Halldór skálar í Hesti, 

heiti pottur hans er sá besti.
Við hangikjöt étum og svið.

Í Hestlandinu stendur hátt 
með hvítt þak, Kerlingagarður.
Oft er þar í koti kátt,
þótt komi vetur harður. 

Súrmeti, hákarl og svið
sumir sætta sig við.
Harðfiskur og hangikjöt
á hlaðborðið er sett á föt.
í Hesti skálar ölvað lið. 

Menn skófla í sig súrum mat 
og semja þorraljóðin.
Í annað fæði gefa frat,
á fyllerí fer þjóðin. 

Þornblót er haldið í Hesti
háaðall met nokkra gesti.
Menn lesa sín ljóð
langflest góð
og líklega éta menn þornnesti.

Kvistur
Þegar þorratíminn hefst
þjórum bjór og blótum.
Okkar þykir allra best
að vera á þessum mótum.

Laufey
Þráðu frið og þíðu 
í þægilegri sveit. 
Blessun sólar og blíðu 
og brátt lauk þeirra leit.  

Hús þau byggðu í Hesti 
hjónin úr Reykjavík. 
Langt frá heimsins lesti 
og af langlundargeði rík.

Unnu brotnu baki 
að byggja þetta hús.
Þreytt á gólf´ og þaki 

en þó svo glöð og dús.

Hjónin í Harðviðarvali 
hamingjusöm er' og glöð. 
Sæl þau ganga um sali 
og sallann í grófri tröð.

Engan lund og laufin ey
í landi þess' er að finna. 
Bara hóla og nokkuð hey 
og haug af einhverju minna.

En framtiðarnafnið vildu fá
og framliðna heiðra mey. 
Stutta voru þau stund að gá 
og staðinn nefndu Laufey.

Kæra vini kveðjum 
kát og mörgum sinnum 
fögnum við hrútsins hreðjum 

og hrósum okkar kynnum

#117

Í landi Hests er lagað vín
sem lapið er á góðri stund
og lengi þótti þörfin brýn
fyrir okkar þjóðvitund
að krýna höfuðborg í paradís 
dömur og herra, kynni ég Paris.