Hið árlega þorrablót Hestlendinga verður haldið laugardaginn 14. jan. 2012 í golfskálanum að Kiðjabergi og hefst það kl. 19:00.

 

Dagskrá verður með hefðbundnum hætti og munu konur prýða sig með hatti en karlar með slaufu. Vísur um bústaðinn ykkar eru himnasending en engin skylda. Blótið er upplagt fyrir sögur úr sveitinni í bundnu eða óbundnu máli og vísnasöng. Ábúendur geta tekið með sér gesti og óskast þátttaka tilkynnt til okkar eigi síðar en 31. des 2011.

Verðið er 4.600 kr. á mann. Vinsamlegast leggið fjárhæðina inn á reikning nr. 515-14-400605, kt. 050856-2169 í síðasta lagi 6. janúar 2012.

Á þorrablótinu verða veitt ýmis verðlaun. Þeir sem eru tilbúnir að gefa heimatilbúna muni eða annað eigulegt vinsamlegast látið nefndina vita.

f.h þorrablótsnefndar,
Steinunn Bjarnadóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., gsm: 844 4926
Þórður G. Ólafsson, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., gsm: 894 1771