Við minnum á skráningu á hið árlega þorrablót Hestlendinga sem haldið verður laugardaginn 14. janúar 2012 kl. 19:00 í golfskálanum að Kiðjabergi.

 

Dagskrá verður með hefðbundnum hætti og munu konur prýða sig með hatti en karlar með slaufu. Vísur um bústaðinn ykkar eru himnasending en engin skylda. Blótið er upplagt fyrir sögur úr sveitinni í bundnu eða óbundnu máli og vísnasöng. Ábúendur geta tekið með sér gesti.

Þátttaka óskast tilkynnt til okkar eigi síðar en 31. des 2011.
Verðið er 4.600 kr. á mann.

f.h þorrablótsnefndar,
Steinunn Bjarnadóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., gsm: 844 4926
Þórður G. Ólafsson, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., gsm: 894 1771