Því miður fyrirfórst að tilkynna ykkur um ruslavikuna hjá okkur í Gogg, það var alveg mín sök og biðst ég innilegrar afsökunar á þeim leiðu mistökum. En ruslavika er hálfnuð, hún er frá sunnudegi 10.júní til og með laugardegi 16.júni, þá er frítt að henda rusli á gámastöðinni í Seyðishólum og opið frá 12:00 til 18:00 alla daga. Nánar sjá heimasíðu gogg.is.

En og aftur afsakið en komið endilega á 17.júní hátíð á Borg næstkomandi, skrúðganga, fjallkona, hátíðarræða, grillaðar pylsur og fleira. Hátíðin byrjar klukkan 13:00.

bestu kveðjur

Hörður Óli Guðmundsson